Skilmálar

Notendaskilmálar korta

Skilmálar vefverslunar Sveitarfélagsins Ölfuss v/ Íþróttamiðstöðvar Þorlákshafnar.

Velkominn í vefverslun Íþróttamiðstöðvarinnar í Þorlákshöfn sem er í eigu og rekstri Sveitarfélagsins Ölfuss kt. 420369-7009. Hafnarberg 1, 815 Þorlákshöfn VSK nr.... Hér eftir verður notast við „við“, „okkur“, og „okkar“ þegar átt er við Íþróttamiðstöð Þorlákshafnar.

Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega áður en þú verslar í vefverslun okkar. Með því að nota vefverslun Íþróttamiðstöðvarinnar í Þorlákshöfn samþykkir þú þessa skilmála:

Eftirtalin hugtök hafa þessa merkingu þar sem þau koma fyrir í skilmálum þessum:

  1. SKILGREININGAR.
  • Fullorðinn eru einstaklingar sem eru 18 ára og eldri.
  • Skiptakort eru sundkort/líkamsræktarkort með inneign á ákveðinn fjölda ferða.
  • Tímabilskort eru kort sem gefið er út með nafni og kennitölu einstaklings og er aðeins til einkanota fyrir þann einstakling.
  • Sundkort veita aðgang að Sundlauginni í Þorlákshöfn.
  • Líkamsræktarkort veita aðgang á líkamsræktinni í Íþróttamiðstöðinni.
  • Árskort í líkamsrækt veitir aðgang í sundlaugina.
  • Kortin eru sjálfsafgreislukort.

 

  1. NOTENDAREGLUR.

Skiptakort:

  • Hægt er að kaupa sundkort/líkamsræktarkort með inneign á ákveðinn fjölda ferða.
  • Fleiri en einn einstaklingur getur notað skiptakort.
  • Skiptakort gildir ekki fyrir hópa.
  • Gildistími skiptakorta er 48 mánuðir frá kaupdegi.

Tímabilakort:

  • Eru kort sem gefin eru út fyrir ákveðinn einstakling og er til einkanota fyrir þann einstakling.
  • Eru aðgreind fyrir börn, fullorðna, aldraða og aðra skilgreinda hópa.
  • Kortið veitir ótakmarkaðar ferðir yfir fyrirfram skilgreint tímabil.

  

  1. GJALDSKRÁ.
  • Sveitarfélagið Ölfus gefur árlega út gjaldskrá fyrir starfsstaði Sveitarfélagsins Ölfuss. Gjaldskrá hvers árs er aðgengileg á heimasíðu Sveitarfélagsins Ölfuss. olfus.is og hangir uppi á starfsstöðum.

 

  1. SKILAREGLUR.
  • Skiptakortum er ekki hægt að skipta yfir í tímabilskort. Ekki er hægt að leggja inn sundkort tímabundið. Ekki er boðið uppá að framselja tímabilskort á aðra kennitölu.

 

  1. VANEFNDIR, LOKUN KORTA.
  • Ef korthafi gerist brotlegur við notendareglur samkvæmt skilmálum þessum hefur Sveitarfélagið Ölfus heimild til að afturkalla og loka korti fyrirvaralaust.

 

  1. GREIÐSLUVANDAMÁL.
  • Ef vandamál vegna greiðslu koma upp eftirá vegna greiðslu (t.d. vákort) áskiljum við okkur rétt til að hafna greiðslunni og hætta við pöntunina.

 

  1. MISNOTKUN Á KORTUM.
  • Verði einstaklingur uppvís að því að framvísa/nota tímabilskort sem skráð er á annan einstakling hefur Sveitarfélagið Ölfus heimild til að loka viðkomandi korti.

 

  1. PERSÓNUUPPLÝSINGAR.
  • Við virðum friðhelgi þína og meðhöndlum persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/200 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Þegar verslað er á vefsíðu þarf að gefa upp nafn, heimilisfang og netfang. Þessar upplýsingar eru eingöngu nýttar til að ganga frá pöntun, en kaupsaga er vistuð áfram á öruggu svæði sem er læst. Athugið að kortanúmer eru aldrei geymd á vefsvæði okkar og einungis er hægt að sjá tegund greiðslu, ef fletta þarf upp í pöntun. Við deilum aldrei persónuupplýsingum með þriðja aðila.